Akureyrarbær

Sumarstörf: Velferðarsvið

Akureyrarbær  •  Onsite  •  20 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Langar þig að kynnast nýju fólki – og sjálfum þér betur í leiðinni? Viltu mæta í vinnu þar sem enginn dagur er eins og hafa gaman?

Velferðarsvið Akureyrarbæjar leitar að kraftmiklu og jákvæðu fólki í sumarafleysingar sumarið 2026. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf þar sem mannleg samskipti og umhyggja eru í forgrunni. Ef þú vilt upplifa sumar sem skiptir máli – þá er þetta tækifærið!

Í boði eru störf í dagvinnu sem og í vaktavinnu, þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Góð liðsheild á starfsstöðvum okkar spilar stóran þátt í því að fólki líði vel og að veitt sé góð þjónusta. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og valdeflingu.

Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk. Lögð er áhersla á að efla og styðja notendur þjónustunnar til sjálfsbjargar og sjálfstæðis.

Starfsfólk okkar sinnir ólíkum einstaklingum í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi:

  • Stuðningur við fatlað fólk til að lifa sem eðlilegustu lífi. Starfsstöðvar eru íbúðakjarnar, íbúðir með þjónustu eða sambýli.
  • Aðstoðar eldri borgara og öryrkja við athafnir daglegs lífs.
  • Styður við fötluð börn og ungmenni í tímabundinni dvöl í skammtímaþjónustu Brekkukots.
  • Starfar í sumarvistun með fötluðum börnum og aðstoðar þau við að njóta menningar-, tómstunda- og félagslífs.
  • Starfar í athvarfinu Laut, fyrir fatlað fólk sem miðar að þátttöku þeirra í félagslífi.
  • Starfar á fjölskylduheimilinu Sólbergi þar sem fer fram greiningar- og þjálfunarvistun fyrir börn og foreldra þeirra.
  • Unnið er eftir þjónustuáætlun, þjálfunaráætlun og/eða dagskipulagi.

Hæfniskröfur:

  • Hæfileiki og áhugi á að starfa með fólki.
  • Stundvísi, sveigjanleiki, samviskusemi, góðvild, gagnkvæm virðing og jákvætt viðhorf til fólks.
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur og skal tekið fram í umsókn.
  • Geta til að vinna undir álagi og taka sjálfstæðar ákvarðanir.
  • Gott líkamlegt atgervi.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Heimaþjónusta veitir stuðnings- og stoðþjónustu á heimilum þar sem þörf er á aðstoð við athafnir daglegs lífs.

Nánari upplýsingar veita:

Bergdís Ösp Bjarkadóttir í síma 460-1412, netfang: bergdis@akureyri.is

Elfa Björk Gylfadóttir í síma 896-0130, netfang: ebg@akureyri.is

  • Unnið er í vaktavinnu og dagvinnu.
  • Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bílpróf og bíl til umráða.
  • Óski umsækjandi eftir starfi á tiltekinni starfstöð skal það tiltekið í umsókn.

Íbúðakjarnar og sambýli fyrir fatlað fólk. Veittur er persónulegur stuðningur og aðstoð við einstaklinga sem þar búa og að þeir fái notið menningar-, tómstunda- og félagslífs.

Nánari upplýsingar veita

Sísý Malmquist, s. 670-8570, sisymall@akureyri.is

Arnar Eyfjörð Harðarson, s. 897-1404, arnarey@akureyri.is

Arna Jakobsdóttir, s. 899-2050, arnajak@akureyri.is

Guðrún Guðmundsdóttir, s. 860-2085, gudrung@akureyri.is

Elfa Björk Gylfadóttir, s. 896-0130, ebg@akureyri.is

Hlynur Már Erlingsson, s. 699-7417, hlynurmar@akureyri.is

Kristinn Már Torfason, s. 863-7701, kmt@akureyri.is

Ólafur Örn Torfason, s. 846-3457, olafurorn@akureyri.is

  • Unnið er í vaktavinnu.
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi bílpróf.
  • Óski umsækjandi eftir starf á tilteknu heimili skal það tiltekið í umsókn.

Skammtíma- og skólavistun fyrir fötluð börn og fullorðna sem miðar að þátttöku þeirra í félagslífi.

Upplýsingar veita:

Anna Einarsdóttir s. 860-2756 annaeina@akureyri.is

Sísý Malmquist, s. 670-8570, sisymall@akureyri.is

  • Unnið er í vaktavinnu og dagvinnu.

Laut athvarf fyrir geðfatlað fólk sem miðar að þátttöku þeirra í félagslífi.

Upplýsingar veitir Ólafur Örn Torfason, s. 846-3457, olafurorn@akureyri.is

  • Unnið er í vaktavinnu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í störfin en vegna hlutlægra þátta, sem tengjast störfum á nokkrum starfsstöðvum, í samræmi við 26. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, gæti í þeim tilvikum þurft að ráða einungis karla eða einungis konur.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-Iðju.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í þjónustuveri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown