Sóltún Heilsusetur - Sumarstarf
Sóltún Heilsusetur á Sólvangi í Hafnarfirði leitar að starfsfólki í stöðu Aðstoðarfólks á endurhæfingardeild fyrir aldraða.
Um er að ræða sólarhringsdeild þar sem fólk dvelur 4-6 vikur í senn með það að markmiði að efla virkni í daglegu lífi og efla þannig getu þeirra til sjálfstæðrar búsetu á eigin heimili.
Sérstaklega er leitast eftir að ráða einstaklinga sem hafa áhuga á heilsueflingu og bættum lífsgæðum aldraðra. Starfið er kjörið tækifæri fyrir nema í iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, hjúkrunarfræði og íþrótta- og heilsufræði, og við hvetjum þá sérstaklega til að sækja um.
Vaktavinna, þá dag- kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall og vaktafyrirkomulag er samkomulagsatriði.
Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri, hafa góða íslenskukunnáttu (C1/C2) og hreint sakavottorð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Nánari upplýsingar gefur Alma Rún Vignisdóttir, deildarstjóri, á tölvupóstfangið alma@soltun.is
Hlökkum til að heyra frá þér!
