Skagafjordur

Sumarstörf 2026 - Upplýsingamiðstöð

Skagafjordur  •  Sauðárkrókur, IS (Onsite)  •  13 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Skagafjörður auglýsir eftir sumarstarfsmanni í upplýsingamiðstöð ferðamanna á Sauðárkróki. Um er að ræða 100% starf, unnið er í dagvinnu.

Einstaklingur þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, gott viðmót og ástríðu fyrir því að veita ferðamönnum upplýsingar til að gera dvöl þeirra í Skagafirði sem ánægjulegasta.

Starfssvið:

Í starfinu felst almenn aðstoð við ferðamenn eftir því sem við á; í síma, tölvu og afgreiðslu. Starfsmaður veitir m.a. upplýsingar um gistimöguleika, veitingar, afþreyingu, veður, færð á vegum, áætlunarferðir, skipulagðar ferðir og margt fleira í Skagafirði og mögulega víðar um land. Í upplýsingamiðstöðinni geta ferðamenn jafnframt nálgast upplýsingabæklinga, ferðakort og fleira. Einnig eru til staðar upplýsingaskjáir og nettengdar tölvur, sem ferðamenn hafa aðgang að.

Hæfniskröfur:

  • Góð staðkunnátta á ferðamannastöðum á Norðurlandi vestra og einhver þekking á þjónustu sem veitt er t.d. gististöðum og afþreyingu.
  • Mjög góð íslensku og enskukunnátta, talað og ritað mál. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur.
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi.
  • Þjónustulund og jákvæðni.
  • Sveigjanleiki, sjálfstæð vinnubrögð, samviskusemi og stundvísi.
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Neves deildarstjóri, maria.neves@skagafjordur.is, 455 6000.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Með umsókn skal skila upplýsingum um menntun og fyrri störf.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Skagafjordur

About Skagafjordur

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Sauðárkrókur, IS
Year Founded
1998
Social Media