
Fjölskyldusvið Skagafjarðar auglýsir eftir sumarstarfsfólki í stuðnings- og stoðþjónustu sem samanstendur af Dagdvöl aldraðra, heimaþjónustu og liðveislu. Starfstími er frá maí til ágústloka eða eftir samkomulagi. Um er að ræða störf í dagvinnu (25%-100%) en einnig er helgarvinna í boði (liðveisla). Sveigjanleiki er í boði varðandi starfshlutall og starfstíma.
Markmið stuðnings- og stoðþjónustu er að efla einstaklinginn til sjálfshjálpar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsi við sem eðlilegastar aðstæður. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Starfssvið:
Starf í dagdvöl aldraðra felur í sér að aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Heimaþjónusta veitir aðstoð við þrif og önnur heimilisstörf og er veitt þeim sem geta ekki hjálparlaust séð um heimilishald vegna skertrar getu eins og veikinda, álags, öldrunar eða fötlunar. Félagsleg liðveisla felst í að aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum.
Hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um störfin veitir Stefanía Sif Traustadóttir, forstöðumaður; stefaniast@skagafjordur.is, 455 6089.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Upplýsingar um menntun og fyrri störf skal skila inn með umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.