Skagafjordur

Sumarstörf 2026: Íþróttamiðstöð Varmahlíð

Skagafjordur  •  Onsite  •  12 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Fjölskyldusvið sveitarfélagsins Skagafjarðar auglýsir eftir sumarstarfsfólki í íþróttamiðstöðina í Varmahlíð. Unnið er í vaktavinnu. Tímabil ráðningar er frá byrjun júní til ágústloka. Sveigjanleiki er í boði varðandi starfshlutfall (50%-100% starfshlutfall) og starfstíma.

Störf í íþróttamannvirkjum:

Starfsmenn íþróttamannvirkja vinna í vaktavinnu þar sem mannvirkin eru opin alla daga vikunnar.

  • Sundlaugarverðir sinna afgreiðslu, þrifum, baðvörslu og öryggisgæslu við sjónvarpsskjái og sundlaugar.

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Almenn tölvuþekking og færni.
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi.
  • Jákvæðni, starfsgleði, frumkvæði og sveigjanleiki.
  • Samviskusemi og stundvísi.
  • Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð skv. æskulýðslögum.

Launakjör og starfsheiti eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag. Starfsheiti sem um ræðir er sundlaugarvörður.

Nánari upplýsingar um störfin veitir: Þorvaldur Gröndal, leiðtogi frístunda- og íþróttamála, 455 6033/660 4639, valdi@skagafjordur.is

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf).

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Skagafjordur

About Skagafjordur

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Sauðárkrókur, IS
Year Founded
1998
Social Media