Skagafjordur

Sumarstörf 2026 - Freyjugata

Skagafjordur  •  Sauðárkrókur, IS (Onsite)  •  29 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Heimili fyrir fatlað fólk á Sauðárkróki óskar eftir sumarstarfsfólki. Starfstími er frá maí til ágústloka eða eftir samkomulagi og möguleiki er á áframhaldandi ráðningu. Unnið er í vaktavinnu. Sveigjanleiki er í boði varðandi starfshlutfall (50%-100%) og starfstíma. Góðir tekjumöguleikar eru í boði.

Heimilið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu þess og skapa því aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu sem utan þess. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Helstu verkefni eru:

  • Veita íbúum persónulegan stuðning og aðstoða þá við að njóta menningar-, tómstunda- og félagslífs.
  • Starfið felur í sér öguð og skipulögð vinnubrögð og vinnur starfsfólk eftir þjónustuáætlunum og dagskipulagi.
  • Almennt heimilishald.

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur, t.d. félagsliðamenntun.
  • Mikilvægir eiginleikar eru sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf til fólks og vinnu sinnar.
  • Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur.
  • Starfið er líkamlega erfitt og krefst því góðs líkamlegs atgervis.
  • Skilyrði er að umsækjendur tali og skilji vel íslensku.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð, skv. lögum um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Örn Sigmundsson, forstöðumaður, í síma 849 7157 eða hlynurorn@skagafjordur.is.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Upplýsingar um menntun og fyrri störf skal skila með umsókn.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Skagafjordur

About Skagafjordur

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Sauðárkrókur, IS
Year Founded
1998
Social Media