Sóltún

Sumarstarf í dagdvölum

Sóltún  •  Onsite  •  4 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Á Sólvangi hjúkrunarheimili í Hafnarfirði er sérhæfð dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun og einnig er þar almenn dagdvöl.

Við leitum að almennu starfsfólki sem hefur áhuga á samskiptum við fólk og er tilbúið að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni.

Starfshlutfall og vinnutími samkomulagsatriði.

Skilyrði er að viðkomandi hafi góða íslenskukunnáttu (C1/C2), sé orðinn 18 ára og með hreint sakavottorð.

Helstu verkefni og ábyrgð

Meðal verkefna eru ýmis konar hreyfing, bæði inni og úti, aðstoð við athafnir daglegs lífs og þátttaka í fjölbreyttu hópastarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Jákvæðni og stundvísi

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Velferðartorg
  • Niðurgreiddur hádegismatur

Markmið dagdvalar

  • Að styðja aldraða einstaklinga til þess að geta búið á eigin heimilum sem lengst og rjúfa félagslega einangrun.
  • Að viðhalda og örva einstaklinga til betri andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.
  • Áhersla er lögð á sjálfræði, samveru og samvinnu.
  • Lögð er áhersla á góðan starfsanda.

Einstaklingar á öllum aldri eru hvattir til að sækja um!

Sóltún er jafnlaunavottað fyrirtæki og greiðir laun samkvæmt kjarasamningi Hlífar og SFV.

Hlökkum til að heyra frá þér!

Sóltún

About Sóltún

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Website
soltun.is
Social Media