Markmið starfseminnar er að veita ungmennum með fjölþættan vanda stuðning við undirbúning sjálfstæðrar búsetu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu, jákvæða vinnustaðamenningu og uppbyggileg samskipti. Unnið er eftir áfallamiðaðri nálgun, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, skaðaminnkun, aðferðum Þjónandi leiðsagnar og valdeflingu. Þjónustan miðast við að auka sjálfstæði, efla færni og lífsgæði íbúa.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir kraftmikla og áhugasama einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun og uppbyggingu starfseminnar.
Unnið er á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Starfshlutfall 80 – 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að hvetja og styðja íbúa til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi.
• Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
• Aðstoð við gerð einstaklingsáætlana í samvinnu við teymisstjóra.
• Yfirsýn yfir stuðningsþarfir íbúa og að þeim sé sinnt.
• Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðarins.
• Eftirfylgd einstaklingsáætlana og verklagsreglna undir verkstjórn teymisstjóra í samvinnu við íbúa.
• Þátttaka í þróunar- og uppbyggingarvinnu.
• Önnur störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af starfi með einstaklingum með fjölþættar stuðningsþarfir æskileg.
• Framúrskarandi hæfni, þolinmæði og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Góð íslenskukunnátta. B2 eða hærra samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
• Bílpróf er kostur.
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Arnar Diego í síma 411-1111 og tölvupósti Kristinn.Arnar.Diego@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.