The City of Reykjavik

Stuðningsfulltrúi í sólarhringsþjónustu fyrir fötluð börn og ungmenni

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  6 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Í Árlandi 9 er veitt sólarhringsþjónusta þar sem allt að fjögur börn og ungmenni dvelja í einu. Mikil áhersla er lögð á að skapa hlýlegt, heimilislegt og öruggt umhverfi. Stuðningsfulltrúar vinna samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, styrkja jákvæða sjálfsmynd og stuðla að auknum lífsgæðum.

Í síðustu könnun Stofnun ársins hlaut Skammtímadvölin í Árlandi viðurkenningar sem fyrirmyndarstarfsstaður og hástökkvari ársins, auk þess sem hún náði 3. sæti í flokki millistórra starfsstaða.

Í boði eru störf í mismunandi starfshlutföllum og unnið er á dag-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf með haustinu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Styður einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og sjálfshjálp.
  • Sinnir umönnun, fylgist með andlegri og líkamlegri líðan einstaklinga og veitir aðstoð varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum.
  • Styður einstaklinga til virkrar þátttöku í samfélaginu, meðal annars með því að efla félagstengsl og taka þátt í afþreyingu, menningar- og íþróttastarfi.
  • Framfylgir einstaklingsáætlunum í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Sinnir skráningu og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
  • Tekur þátt í fundum og teymisvinnu sem tengjast starfinu.
  • Sinnir öðrum verkefnum samkvæmt nánari ákvörðun yfirmanns.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af starfi með börnum, ungmennum eða fötluðu fólki er æskileg.
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Mjög góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf.
  • Frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Bílpróf.
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
  • Íslenskukunnátta B1 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Daníel Þór Friðriksson, forstöðumaður, í tölvupósti daniel.thor.fridriksson@reykjavik.iseða í síma 615-4456 á venjulegum skrifstofutíma.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media