
Árland 9 er skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni. Börnin dvelja þar reglulega og eru heima hjá fjölskyldum sínum þess á milli. Mikil áhersla er lögð á að skapa hlýlegt, heimilislegt og öruggt umhverfi þar sem börnin njóta stuðnings, umönnunar og tækifæra til að efla færni sína og sjálfstæði.
Stuðningsfulltrúar starfa samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks með það að markmiði að efla færni, auka sjálfstæði, styrkja jákvæða sjálfsmynd og stuðla að auknum lífsgæðum.
Skammtímadvölin í Árlandi hlaut á síðasta ári viðurkenningar í könnuninni Stofnun ársins sem fyrirmyndarstarfsstaður og hástökkvari ársins. Einnig lenti starfsstaðurinn í 3. sæti í flokki millistórra starfsstaða.
Um er að ræða tímbunda eða ótímabundna stöðu í 50–80% starfshlutfalli. Unnið er á dag-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum aðra hvora helgi. Börnin eru yfirleitt í skóla og frístundastarfi á virkum dögum og því eru aðeins morgun- og kvöldvaktir á þeim tíma. Æskilegt er að umsækjendur geti sinnt öllum tegundum vakta.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Hlunnindi í starfi
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Daníel Þór Friðriksson, forstöðumaður, í netfanginu daniel.thor.fridriksson@reykjavik.is eða í síma 664 2727 á skrifstofutíma.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.