The City of Reykjavik

Stuðningsfulltrúi óskast í Ártúnsskóla

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  9 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Laus er til umsóknar 50 – 70% staða stuðningsfulltrúa við Ártúnsskóla.

Ártúnsskóli er samrekinn leikskóli, grunnskóli og frístundaheimili þar sem áhersla er lögð á að allir fái að njóta sín í leik og starfi. Einkunnarorð skólans eru Árangur-Virðing-Vellíðan. Einkunnarorðin endurspegla áherslur skólastarfsins. Stefnt er að framúrskarandi árangri, virðing er borin fyrir fólki og umhverfi og fjölbreytileikanum fagnað.

Umsókn fylgi ferilskrá, kynningarbréf, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans artunsskoli.reykjavik.is

Ef vilji er fyrir, kemur til greina að fylla upp í fulla stöðu með því að vinna einnig í frístundaheimili Ártúnsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.
Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara.
Leitast við að aðstoða nemendur í félagslegum samskiptum.

Hæfniskröfur
Hæfni í mannlegum samskiptum

Áhugi og reynsla á að vinna með börnum

Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Góð íslenskukunnátta (stig C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum)

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Starfshlutfall 50 - 70%
Umsóknarfrestur 4. júní 2026
Ráðningarform Tímabundin ráðning
Nafn sviðs Skóla- og frístundasvið

Nánari upplýsingar um starfið veita Ellen Gísladóttir skólastjóri ellen.gisladottir@reykjavik.is og Guðrún Bára Gunnarsdóttir aðstoðarskólastjóri gudrun.bara.gunnarsdottir@reykjavik.is eða í síma 4117670.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media