The City of Reykjavik

Stuðningsfulltrúi í Safnfrístund Frostheimum

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  41 minutes ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Frostheimar leitar að áhugasömu og hæfu starfsfólki í hlutastörf á frístundaheimilinu næstkomandi skólaár (2026/2027). Áhugasömum er bent á að starfið hófst 24. ágúst og því er ráðið í hlutastörf við frístunaheimilin frá og með þeim tíma.

Á frístundaheimilum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur um 13:30 og er starfið kjörið fyrir þau sem eru í skóla og leita að skemmtilegu hlutastarfi með námi eða þau sem vilja vinna í ca. 20-50% starfi eftir hádegi.

Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. Hæft og áhugasamt starfsfólk er lykillinn að því að veita börnunum og foreldrum sem sækja þjónustu til Frostheima fyrsta flokks þjónustu og gegna hæfir og áhugasamir frístundaleiðbeinendur/frístundaráðgjafar þar veigamiklu hlutverki.

Frostheimar heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sem leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks og við störfum samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna samkvæmt samþykktri einstaklingsáætlun.
  • Veita einstaklingsbundinn stuðning í samræmi við leiðbeiningar foreldra, forstöðumann og ráðgjafaþroskaþjálfa.
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með fötluðum börnum og/eða börnum sem þurfa sértækan stuðning v. annarra ástæðna en fötlunar
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Færni í samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Í boði eru hlutastörf 20-50% eftir hádegi frá 24. ágúst.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Sé óskað nánari upplýsinga um starfið má senda tölvupóst á Kristnýju Rós H. Gústafsdóttir forstöðukonu Frostheima á netfangið: kristny.ros.gustafsdottir@reykjavik.is

Ráðningarform - Timabundin ráðning til 10. júní 2027

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media