Um starfið
Við leitum að starfsfólki til að ganga til liðs við okkur í sumar á heimili fyrir karlmenn með geð- og vímuefnaröskun. Starfið er fjölbreytt, gefandi og lærdómsríkt og hentar vel þeim sem hafa áhuga á að vinna með fólki, skaðaminnkandi nálgun og valdeflandi stuðningi.
Stuðningur við íbúa miðar að því að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og bæta lífsgæði. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og tekur mið af þörfum og aðstæðum hvers og eins, með virðingu, sjálfræði og velferð íbúa að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að efla færni, sjálfstæði, samfélagsþátttöku og lífsgæði einstaklinga.
Unnið er samkvæmt hugmyndafræði skaðaminnkunar og þjónandi leiðsagnar. Starfið er tilvalið fyrir þau sem vilja vinna í lifandi og fjölbreyttu starfsumhverfi þar sem reynir á samskiptafærni, yfirvegun, frumkvæði og lausnamiðaða nálgun.
Vinnutími er fjölbreyttur og æskilegt er að starfsfólk geti unnið mismunandi tegundir vakta, þ.e. dag-, kvöld-, helgar- og næturvaktir. Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfnikröfur
Við bjóðum
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Kristján Guðmundsson, forstöðumaður, í tölvupósti: kristjang@reykjavik.is

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.