Velferðarsvið óskar eftir að ráða starfsmenn í íbúðakjarna Þórðarsveigi 1.
Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára. Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er bæði kvöld og helgar. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða vinnu í íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun, 40 ára og eldri í Grafarholti.
Verið er að leita eftir fólki til að vinna í vaktavinnu, það eru dagvaktir, kvöldvaktir og í einhverjum tilfellum næturvaktir.
Í kjarnanum eru 6 einstaklingsíbúðir. Vinnan gengur út á að aðstoða íbúa við allar helstu athafnir daglegs lífs.
Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn með það að markmiði að efla sjálfstætt líf einstaklinga.
Hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
· Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar
· Heilsustyrkur
· Samgöngustyrkur
· 36 stunda vinnuvika
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.