The City of Reykjavik

Stuðningsfulltrúi – Foldaskóli

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  4 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Foldaskóli er heildstæður grunnskóli þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag og fjölbreytta kennsluhætti. Nemendur við skólann eru tæplega 500 en ásamt því að vera hverfisskóli nemenda í 1.-10. bekk í Foldahverfi er hann safnskóli á unglingastigi fyrir Hamra- og Húsahverfi. Við skólann er starfrækt Foldaver, sérdeild fyrir einhverfa.

Leiðsagnarnám og skapandi lærdómssamfélag einkenna skólann ásamt sterkri umhverfisvitund og heilsueflingu en skólinn tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og fylgir grænum skrefum Reykjavíkurborgar. Umhverfi skólans býður upp á mikla möguleika þar sem hann er í nálægt við Grafarvoginn sem státar af fjölbreyttri náttúru og iðandi fuglalífi.

Einkunnarorð skólans eru: siðprýði – menntun – sálarheill

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins Betri borg fyrir börn og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að aðstoða nemendur við þátttöku í skólastarfi og athafnir daglegs lífs.
  • Aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra.
  • Fylgir einum eða fleiri nemendum eftir á ferðum þeirra í skólastarfi s.s. í sundi, frímínútum og vettvangsferðum.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.

Hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi.
  • Gott vald á íslensku.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis

Starfshlutfall – 70-80%

Ráðningarform – Tímabundin ráðning

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía María Gunnarsdóttir skólastjóri Olafia.maria.gunnarsdottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media