Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 385 í 1. – 7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 60.
Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla og vinnustaðar. Í skólanum er unnið með læsi á fjölbreytilegan máta og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Skólinn leitar að stuðningsfulltrúa í góðan hóp starfsfólks.
Gildi skólans eru vinátta - virðing - vellíðan.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Helen Eiðsdóttir skólastjóri í síma 411-7570/6977733 og í tölvupósti maria.helen.eidsdottir@reykjavik.is
Staðan er laus strax og er 70% starfshlutfall. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur er til að með 11. desember nk.
Umsókn fylgir ferilskrá, kynningarbréf, og annað er málið varðar.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.