The City of Reykjavik

Stuðningsfulltrúar óskast til starfa á nýtt heimili fyrir ungmenni með fjölþættan vanda

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  17 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Markmið starfseminnar er að veita ungmennum með fjölþættan vanda stuðning við undirbúning sjálfstæðrar búsetu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu, jákvæða vinnustaðamenningu og uppbyggileg samskipti. Unnið er eftir áfallamiðaðri nálgun, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, skaðaminnkun, aðferðum Þjónandi leiðsagnar og valdeflingu. Þjónustan miðast við að auka sjálfstæði, efla færni og lífsgæði íbúa. Um sólarhringsþjónustu er að ræða og unnið á vöktum.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir kraftmikla og áhugasama einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun og uppbyggingu starfseminnar.

Unnið er á dag-, kvöld-, nætur- og helgarvöktum. Starfshlutfall 80 – 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Að hvetja og styðja íbúa til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi.

• Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.

• Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá eftir þörfum hverju sinni.

• Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.

• Framfylgir einstaklingsáætlun í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila

• Önnur störf sem falin kunna að vera af yfirmanni

Hæfniskröfur

• Góð almenn menntun.

• Reynsla af starfi með einstaklingum með fjölþættar stuðningsþarfir æskileg.

• Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

• Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.

• Framúrskarandi hæfni, þolinmæði og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.

• Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.

• Bílpróf er kostur

• Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Arnar Diego í síma 411-1111 og tölvupósti Kristinn.Arnar.Diego@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media