The City of Reykjavik

Stuðningsfulltrúa vantar í sumarafleysingar á íbúðakjarna í Grafarvogi

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  10 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Íbúðakjarninn Barðastöðum 35 leitar að jákvæðum og metnaðarfullum stuðningsfulltrúum í afleysingar með möguleika á áframhaldandi starfi eftir sumarið.

Á Barðastöðum er þéttur, skemmtilegur, kraftmikill og samheldinn starfsmannahópur sem tekur vel á móti nýju fólki.

Starfið er fjölbreytt þar sem leitast er við að mæta þörfum og óskum íbúa hverju sinni. Rík áhersla er á teymisvinnu til að tryggja framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúanna. Unnið er eftir hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar. Starf stuðningsfulltrúa byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.

Starfshlutfall er 100% með blönduðum vöktum, morgun, kvöld og helgarvaktir.

Karlmenn eru sérstaklega hvattir til þess að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs. Í því felst að gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.
  • Stuðningsfulltrúi aðstoðar við framkvæmd einstaklingaáætlana í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
  • Veitir aðstoð við meðferð fjármuna í samráði við einstaklinga og stjórnendur. Hann tekur þátt í fundum og teymisvinnu. sem tengjast starfinu.

Hæfniskröfur

  • Góð almenn menntun.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Bílpróf er nauðsynlegt.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Ósk Grettisdóttir í síma 661-0613 eða á netfangið gudrun.osk.grettisdottir@reykjavik.is

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media