Auglýst er eftir stærðfræðikennara í kennslu og umsjón á unglingastigi.
Starfshlutfall er 100% og ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Í Valhúsaskóla eru um 250 nemendur í 7. – 10. bekk. Við skólann starfa um 50 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar – uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Lögð er áhersla á samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.
Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi og upplýsingar um umsagnaraðila, á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.
Upplýsingar um starfið veitir Helga Þórdís Jónsdóttir, skólastjóri; helgajo@seltjarnarnes.is
sími: 5959 250
