
Bifvélavirki / Vélvirki á Keflavíkurflugvelli
Langar þig að vinna með einn öflugasta tækjaflota landsins á spennandi og góðum vinnustað?
Isavia leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum bifvélavirkja eða vélvirkja til liðs við vélaverkstæði Keflavíkurflugvallar. Vélaverkstæðið er staðsett í þjónustuhúsi Isavia á Eystrahlaði þar sem öflugt teymi sinnir fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum á hverjum degi. Starfið býður upp á tækifæri til að vinna með sérhæfðan tækjabúnað í lifandi og spennandi umhverfi og gegna mikilvægu hlutverki í daglegum rekstri flugvallarins.
Helstu verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristján Karl Meekosha verkstæðisformaður í gegnum netfangið kristjan.meekosha@isavia.is.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

We connect the world through Iceland ✈️
Isavia has the important role of handling the operation and development of infrastructure that lays the foundation for Iceland’s air transport, connections with the outside world and flights between continents.
Keflavik Airport is the largest gateway into Iceland. It is one of the most important single infrastructures of the tourism industry and plays an important role in creating a good quality of life and prosperity in Iceland.
To meet that responsibility, we have a united team and strong employees, who work together and with others in a constructive way.