Skagafjordur

Starfsmaður í skóla með stuðning, Árskóli

Skagafjordur  •  Sauðárkrókur, IS (Onsite)  •  12 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Árskóli óskar eftir að ráða í stöðu starfsmanns í skóla með stuðning í 50% - 100% starfshlutfalli frá 1. ágúst 2026.

Árskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur sem búa á Sauðárkróki, í Hegranesi, á Reykjaströnd og á Skaga. Í Árskóla vinnur sérmenntað starfsfólk saman að því að mæta ólíkum einstaklingum með krefjandi verkefnum við hæfi hvers og eins. Starfsemi Árskóla fer fram í húsnæði skólans við Skagfirðingabraut. Í Árskóla eru rúmlega 390 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er deildaskiptur í yngsta stig, miðstig og unglingastig.

Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem hefur sýnt árangur í störfum sínum og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við samstarfsfólk, stjórnendur skólans og fagaðila.

Starfslýsing

Í starfi starfsmanns í skóla með stuðning felst aðstoð við nemendur með þroska- eða hegðunarfrávik og aðstoðar kennara vegna námsstuðnings. Kennari hefur verkstjórn og skipulag með öllum námslegum stuðningi. Starfsmaður gætir og leiðbeinir nemendum í margskonar aðstæðum inni sem úti og tekur þátt í því uppeldis- og skólastarfi sem fer fram innan skólans.

Hæfniskröfur

Jákvæðni og áhugi á starfi með börnum. Starfsfólk skólans er í mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir barna, þurfa að geta lesið í aðstæður og brugðist fljótt og vel við þegar þörf er á. Góð samstarfs- og samskiptafærni, sem og umhyggja eru miklir kostir í starfinu. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Leitað er eftir einstaklingum sem hefur til að bera góða færni í mannlegum samskiptum, er með ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Hreint sakavottorð skv. lögum um grunnskóla.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Bjarni Halldórsson, skólastjóri, kristjan@arskoli.is, 4551101 / 6914999.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Upplýsingar um menntun og fyrri störf skulu fylgja umsókn.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Skagafjordur

About Skagafjordur

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Sauðárkrókur, IS
Year Founded
1998
Social Media