Við leitum að öflugum og tæknilega þenkjandi stafrænum vörustjóra sem vill leiða þróun lausna fyrir gögn og skjöl hjá Orkuveitunni og dótturfélögum.
Hlutverkið snýr að því að móta og þróa stafrænar lausnir sem gera starfsfólki kleift að vinna með gögn og skjöl á einfaldan, öruggan og skilvirkan hátt. Þú vinnur náið með skjalastjóra, notendum, þróunarteymum, arkitektum og öryggissérfræðingum og tengir saman þarfir rekstrar, tæknilega möguleika og kröfur um meðhöndlun og varðveislu upplýsinga.
Hvers vegna Orkuveitan?
Orkuveitan samanstendur af móðurfélaginu og fjórum dótturfélögum; Veitur, Orka náttúrunnar, Ljósleiðarinn og Carbfix og hefur það hlutverk að styðja vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu.
Rannsóknir hafa sýnt að fjölbreytileiki leiðir til betri árangurs og við hvetjum öll sem uppfylla grundvallarskilyrði starfsins til að sækja um, óháð því hvort þau haki í öll boxin.
Umsóknarfrestur er til og með 27. september 2026. Nánari upplýsingar veitir Kristrún Lilja Júlíusdóttir, Head of Digital Transformation; Kristrun.Lilja.Juliusdottir@orkuveitan.is

Orkuveitan (Reykjavík Energy) provides electricity, geothermal water, cold water, carbon storage and a state-of-the-art fibre optic network through four subsidiaries: Veitur, ON Power, Carbfix and Reykjavik Fibre Network.
Veitur is a multi-utility company and Iceland's largest. Its services extend to 20 communities, covering 67% of the Icelandic population.
ON Power is a leading energy company in Iceland that owns and operates the largest geothermal power plant in the world. ON Power supplies homes, businesses and industrial clients with 100% pure, green and renewable energy at highly competitive prices.
Carbfix provides a natural and permanent storage solution by turning CO₂ into stone underground. The company’s mission is to be a key instrument to tackle the climate crisis and substantially reduce global CO₂ emissions.
Reykjavik Fibre Network is a communications firm that installs and operates a state-of-the-art fibre optic network connecting homes and businesses in its expanding service area. Every home in Iceland's capital, Reykjavik, is connected to the fibre.