Nova leitar að stafrænum vöruhönnuði í eitt af vöruteymum Nova. Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á góðri upplifun, elskar að gera flókna hluti einfalda og vill hafa raunveruleg áhrif á hvernig viðskiptavinir upplifa Nova.
Þú verður hluti af þverfaglegu vöruteymi og vinnur náið með vörustjóra og þróunarteymi að því að skilja viðskiptavininn, finna réttu lausnirnar, prófa þær og koma þeim í loftið.
Hvað munt þú gera?
Hvað einkennir þig?
Þú hefur góða þekkingu á UX og UI, kannt vel á Figma og hefur reynslu af því að hanna stafrænar vörur og þjónustu.
Þú spyrð góðra spurninga og vilt skilja af hverju áður en þú ákveður hvernig Þú kannt að nýta rannsóknir, notendaprófanir og gögn og átt auðvelt með að prófa nýja hluti, læra og skipta um skoðun.
Þú þarft ekki að vita allt – en þú þarft að hafa áhuga á að læra. Þú tekur vel í endurgjöf, deilir þekkingu og hefur gaman af því að vinna með öðrum hönnuðum að því að gera góða hluti enn betri.
Þekking á hönnunarkerfum og vörugreiningartólum eins og PostHog er stór plús.

Nova var stofnað í maí 2006 og í lok mars 2007 fékk Nova úthlutað 3G rekstrarleyfi. Þann 1. desember 2007 opnuðum við svo dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi. Nova á og rekur eigið 4G/4.5G farsíma- og netkerfi á landsvísu. Í febrúar 2019 hóf Nova prófanir á fyrsta 5G sendinum á Íslandi og 5.5.2020 fór Nova í loftið með 5G farsíma- og netþjónustu, fyrst allra farsímafyrirtækja á Íslandi. Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi.
Við erum sérstaklega stolt og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins 2023, hlotið Jafnlaunavottun 2020-2023, fyrir að vera Markaðsfyrirtæki ársins 2020 hjá ÍMARK og eiga ánægðustu viðskiptavinina á farsímamarkaði 17. árið í röð! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustað í heimi!
Nova is a life-style oriented brand built around the first independent 3G mobile operator in Iceland. Nova has enjoyed an unparalleled success in the Icelandic telco market by capturing 34,5% of the mobile market share and in doing so established itself as a leading brand and the market challenger. The key to this success is the quality of the customer service Nova offers. Nova has been awarded the highest customers satisfaction score sixteen years in a row. Nova was the first telecommunication company to test the first 5G transmitter in Iceland and on 5 May 2020, Nova went live with 5G mobile phone and internet services, the first of all mobile phone companies in Iceland. Nova has 150 talented employees with various backgrounds and experiences. In 2016 Nova added fiber service to its selection of products, using a fiber system provided by Ljósleiðarinn ehf. We are especially proud, humble and grateful to have the opportunity to service you as a customer and our opportunities to grow and learn every day.