The City of Reykjavik

Staða ráðgjafa á sviði málþroska og læsis

The City of Reykjavik  •  Onsite  •  16 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Miðja máls og læsis, á skrifstofu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, auglýsir laust til umsóknar 50% starf ráðgjafa á sviði málþroska og læsis í grunnskólum. Hlutverk Miðju máls og læsis er að veita ráðgjöf um þróun faglegra starfshátta og skipuleggja starfsþróun fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Auk þess að skipuleggja fræðslu fyrir foreldra.

Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar og skólahljómsveita. Næsti yfirmaður ráðgjafa er deildarstjóri Miðju máls og læsis.

Helstu verkefni og ábyrgð

Veita starfsfólki í grunnskólum stuðning við að þróa markviss vinnubrögð til að efla málþroska og læsi nemenda.

Skipuleggja og annast fræðslu fyrir starfsfólk um málþroska og læsi.

Skipuleggja og annast fræðslu fyrir foreldra í samstarfi við starfsfólk í grunnskólum.

Samstarf við fagskrifstofur á skrifstofu skóla- og frístundasviðs og skólaþjónustu miðstöðva í Reykjavík auk annarra sérfræðinga.

Hæfniskröfur

Leyfi til að nota starfsheitið kennari.

Háskólamenntun á framhaldsstigi er varðar málþroska og læsi.

Reynsla af starfi í grunnskóla.

Reynsla af ráðgjöf við grunnskóla æskileg.

Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

Frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð.

Umsókninni þarf að fylgja greinargerð í stuttu máli um þekkingu og reynslu af vinnu með málþroska og læsi, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf kennara, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt eða tekið þátt í og annað er málið varðar.

Um er að ræða 50% starfshlutfall.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og KÍ.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dröfn Rafnsdóttir, deildarstjóri Miðju máls og læsis í síma 411 7093 eða með pósti á netfangið: drofn.rafnsdottir@reykjavik.is

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

The City of Reykjavik

About The City of Reykjavik

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.

Industry
Government & Public Safety
Company Size
1,001-5,000 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
1786
Social Media