Job Description
Viltu vera með í að móta framtíðina í Mánalandi?
Leikskólinn Mánaland leitar að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf sérkennslustjóra/aðstoðarleikskólastjóra til að bætast í okkar öfluga hóp.
Ef þú hefur brennandi áhuga á leikskólastarfi, vilt hafa raunveruleg áhrif og starfa í alþjóðlegu og lifandi samfélagi, þá er Mánaland staðurinn fyrir þig.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórn og ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu, ásamt leikskólastjóra
- Umsjón sérkennslu, frumgreiningar og ráðgjöf til annarra starfsmanna
- Náið samstarf, fundir og viðtöl með deildastjórum, foreldrum/forráðamönnum
- þátttaka í í verkefnum er snúa að mati og þróun
- Tengiliður farsældar samkvæmt farsældarlögum
- Samstarf við leikskólastjóra um daglega stjórnun og skipulagningu starfsins í takt við aðalnámskrá leikskóla og stefnu skólans
- Aðstoðaleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans
- Þátttaka í innra starfi og starfsmannafundum
- Að efla og viðhalda fagþekkingu sinni með reglubundinni endur- og símenntun.
- Ýmis önnur verkefni er varða uppeldi og menntun leikskólabarna í samráði við yfirmenn
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu
- Menntun í sérkennslufræðum og/eða reynsla af sérkennslu
- Farsæl reynsla af starfi og/eða stjórnun á leikskóla kostur
- Jákvæðni, sjálfstæði og sveigjanleiki
- Opið hugarfar í tengslum við þróun skólastarf og breytingar
- Áhugi á að vinna skemmtilegt starf með börnum
- Rík færni til samstarfs og samskipta
- Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Almenn góð tölvukunnátta
- Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla
Leikskólakennarar starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu sveitarfélagsins sem og öðrum stefnum sveitarfélagsins sem í gildi eru á hverjum tíma og við eiga.
Af hverju Mánaland?
- Við fluttum í glænýtt og glæsilegt húsnæði í ágúst 2024 sem býður upp á framúrskarandi starfsaðstæður og skapandi umhverfi fyrir börn og starfsfólk.
- Við erum á vegferð þar sem við byggjum upp öflugt fagstarf frá grunni.
- Faglegur metnaður: Við vinnum samkvæmt hugmyndafræði Reggio Emilia og erum að innleiða Jákvæðan aga. Skólanámskráin okkar er nýendurskoðuð og við leggjum mikla áherslu á sköpun og lýðræði í starfi.
- Málörvun í forgrunni: Við fengum nýlega styrk til að innleiða verkefnið „Ævintýri í hverju spori, málörvun frá morgni til kvölds, sem byggir á Orð eru ævintýri á næsta skólaári – spennandi tækifæri til að dýpka þekkingu á málþroska barna.
- Alþjóðlegt umhverfi: Hjá okkur er mikil og auðgandi fjölmenning. Við lítum á fjölbreytileikann sem styrkleika og viljum þróa starfshætti okkar enn frekar á því sviði.
- Gott skipulag: Viðvera barna er 36 stundir á viku, sem gefur rými fyrir vandað skipulag og faglegt starf.
- Frábær frí og endurmenntun: Stytting vinnuvikunnar: Við nýtum styttinguna okkar á snjallan hátt! Hún er tekin út í samfelldum dögum í jóla- og páskafríum, auk nokkurra auka daga yfir árið. Þetta tryggir starfsfólki góða hvíld.
- Námsferð til Glasgow: Í apríl 2027 stefnum við öll á hvetjandi endurmenntunarferð til Glasgow þar sem við munum kynna okkur nýjungar í leikskólastarfi og þjappa hópnum saman.
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2026
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita
Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is
Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is