
Við leitum að metnaðarfullum og umhyggjusömum einstaklingi til að ganga til liðs við sérkennsluteymið okkar. Starfið felst í að veita einstaklingsmiðaðan stuðning við börn sem þurfa sérstaka aðstoð í leik og námi.
Ævintýraborg við Nauthólsveg er 6 deilda leikskóli sem staðsettur er í fallegu umhverfi. Öskjuhlíð og Nauthólsvík eru hluti af okkar daglega uppeldis- og námsumhverfi og leggjum við áherslu á útinám, læsi, félagsfærni og nám í gegnum leik þar sem forvitni og vellíðan barna er í fyrirrúmi.
Einkunnarorð leikskólans eru virðing, vinátta og vellíðan. Hjá okkur starfar samhentur og hlýr hópur sem leggur ríka áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnum. Við trúum því að börn læri best í gegnum leik, forvitni og tengsl og að starfsfólk sem fær að njóta sín skapi bestu aðstæðurnar fyrir börnin.
Starfið er unnið í samstarfið við sérkennslustjóra og deildarstjóra. Helstu verkefni og ábyrgð eru að:
Starfið er laust strax eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Anna Metta Norðdahl, í tölvupósti: anna.metta.norddahl@reykjavik.is eða síma 411-6760
Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ/FL

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.