Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi:
Í Mýrarhúsaskóla eru um 340 nemendur í 1. – 6. bekk. Við skólann starfa um 60 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar – uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Lögð er áhersla á samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.
Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið veitir Kristjana Hrafnsdóttir skólastjóri kristjana.hrafnsdottir@seltjarnarnes.is í síma 5959200.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2026.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026
