Víkurskóli, Vík í Mýrdal leitar að metnaðarfullum og drífandi sérkennara.
Um 50% starf er að ræða með möguleika á hærra hlutfalli með almennri kennslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar.
Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark.Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026
Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá á íslensku og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Sótt er um starfið á www.mognum.is
Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is
Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is

Öflugt og framsækið þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðningum, ráðgjöf, fræðslu og markþjálfun fyrir fólk og vinnustaði sem vilja ná lengra.
Mögnum leggur áherslu á viðurkenndar nálganir og faglegar aðferðir sem skila viðskiptavinum virði og árangri. Mögnum var stofnað árið 2017 og er eina fyrirtækið sem býður upp á sambærilega þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins.
Mögnum það sem á svæðinu býr svo við eflumst sem samfélag.