Orka náttúrunnar / ON Power

Sérfræðingur í viðskiptagreind, gervigreind og hagnýtingu gagna

Orka náttúrunnar / ON Power  •  Onsite  •  8 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að einstakling í sérfræðihlutverk á sviði viðskiptagreindar, gervigreindar og hagnýtingu gagna.

Vilt þú vinna með gervigreind og gögn í umhverfi þar sem greining, framsetning og nýsköpun skipta raunverulegu máli fyrir ákvarðanatöku og rekstur?

Orka náttúrunnar leitar að öflugum sérfræðingi í viðskiptagreind, gervigreind og hagnýtingu gagna til starfa hjá deild stafrænnar þróunar.

Starfið býður upp á spennandi tækifæri til að þróa gagnalausnir, módel og AI‑lausnir sem styðja við stefnu, rekstur og framtíðarsýn ON.

Í hlutverkinu felst þróun og viðhald lausna á sviði viðskiptagreindar, gervigreindar og gagnagreininga, s.s. mælaborð, skýrslur og líkön.

Þú munt jafnframt útfæra gagnagreiningar, smíða og hanna mælaborð og gagnalíkön ásamt því að þróa lausnir í gagnavinnsluumhverfum, s.s. Databricks og Power BI.

Á meðal annarra helstu verkefna eru:

  • Nýting gervigreindar til að greina mynstur, bæta skilning á rekstri og þróa nýjar stafrænar lausnir
  • Stuðla að stöðugum umbótum, nýsköpun og tækniframförum á sviði gagna, viðskipta- og gervigreindar
  • Stuðningur og ráðgjöf til hagaðila um hagnýtingu gagna, greiningar og gervigreindarlausnir

Starfið býður upp á krefjandi og spennandi tækifæri í framsæknu og samfélagslega mikilvægu fyrirtæki.

Hjá okkur færðu raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á hvernig gögn og gervigreind eru nýtt í stórum rekstri.

Þú munt verða hluti af sterku og metnaðarfullu teymi Stafrænnar þróunar og njóta þín í starfsumhverfi sem einkennist af trausti, sveigjanleika, fagmennsku og stöðugri þróun.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af gagnagreiningu og viðskiptagreind
  • Reynsla eða sterkur áhugi á gervigreind, vélrænu námi og/eða líkanagerð
  • Þekking á Power BI er kostur
  • Þekking á Python og SQL
  • Kostur ef reynsla eða þekking er af Databricks eða sambærilegu
  • Góð greiningarhæfni, skipulag og geta til að miðla flóknum upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í verkfræði, tölvunarfræði, gagnavísindum eða sambærilegu

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Við tökum jafnréttið alvarlega!

Við viljum hafa sem fjölbreyttastan hóp starfsfólks og hvetjum því öll kyn til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2026.

Nánari upplýsingar veitir Herdís Skúladóttir, deildarstjóri Stafrænnar þróunar, Herdis.Skuladottir@on.is.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Um Orku náttúrunnar

Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn í jarðhitavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt framleiðslu rafmagns með vatnsafli í Andakílsárvirkjun.

ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og selur rafmagn til fyrirtækja og heimila um allt land en framleiðir heitt vatn til sölu og dreifingar hjá systurfélagi þess, Veitum.

ON er dótturfélag Orkuveitunnar sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.

ON framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.

Hvernig vinnustaður er Orkuveitan?

Orka náttúrunnar / ON Power

About Orka náttúrunnar / ON Power

ON Power produces and sells geothermally generated electricity for the Icelandic market. As well as providing the capital area of Reykjavík with hot water.

The objective is to protect the interests of the country’s natural resources and the company’s customers, guided by the principle of sustainability. In so doing, the company supports innovation and the responsible utilisation of natural resources and promotes energy switching to a lower ecological footprint for the benefit of society as a whole.

//

Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt til allra landsmanna á Íslandi.

Markmiðið er að gæta hagsmuna auðlinda landsins og viðskiptavina fyrirtækisins með sjálfbærni að leiðarljósi. Þar með styður fyrirtækið við nýsköpun, ábyrga nýtingu auðlindarinnar og flýtir fyrir orkuskiptum með minna vistspori, samfélaginu öllu til heilla.

Industry
Energy & Utilities
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
2014
Website
on.is
Social Media