Íslandsbanki

Sérfræðingur í verðbréfagreiningu

Íslandsbanki  •  Onsite  •  10 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vegna mikilla umsvifa leitar Íslandsbanki að greinanda í samhentan hóp Verðbréfamiðlunar Íslandsbanka sem er ein öflugasta miðlun landsins og veitir fagfjárfestum aðgang að mörkuðum með hluta- og skuldabréf auk viðskipta með afleiður á verðbréfum.

Verðbréfamiðlun annast meðal annars kaup og sölu verðbréfa, hérlendis og erlendis, og hefur umsjón með skuldabréfaútboðum og frumútgáfum skuldabréfa í samstarfi við fjárfesta og aðra markaðsaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verðmöt og greiningar á fyrirtækjum
  • Gerð kynningarefnis
  • Virk þátttaka í fjölbreyttum verkefnum viðkomandi einingar

Hæfniskröfur:

  • Háskólanám sem nýtist í starfi, helst á meistarastigi
  • Verðbréfaréttindi eru mjög æskileg
  • Frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Gott vald á notkun íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli
  • Þekking á gerð verðmata
  • Starfsreynsla af fjármálamarkaði er kostur en ekki skilyrði

Nánari upplýsingar um störfin veita:

Sigurður Hreiðar Jónsson, forstöðumaður Verðbréfamiðlunar (sigurdur.hreidar.jonsson@islandsbanki.is) og Guðlaugur Örn Hauksson, ráðningarstjóri (gudlaugurh@islandsbanki.is).

Íslandsbanki

About Íslandsbanki

With a history that dates from 1875, Íslandsbanki is an Icelandic universal bank with a strong customer focus. The Bank believes in moving Iceland forward by empowering its customers to succeed - reflecting a commitment to run a solid business that is a force for good in society. Driven by the corporate vision to create value for the future with excellent service, Íslandsbanki’s banking model is led by three business divisions that build and manage relationships with its customers. Íslandsbanki maintains a strong market share with the most efficient branch network in the country, supporting at the same time its customers’ move to more digital services.

Um Íslandsbanka:

Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýn um að skapa virði til framtíðar með því að veita framúrskarandi þjónustu, vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra.

Industry
Finance & Insurance
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Kópavogur, IS
Year Founded
1904
Social Media