
Við leitum að metnaðarfullum og ábyrgum liðsfélaga til að styrkja teymi sérfræðinga sem sinnir rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og sjálfvirknivæðingu í flutningskerfi raforku. Hlutverk teymisins er að undirbúa Landsnet fyrir framtíðina – hvort sem það felur í sér nýja tækni, aukinn raforkuflutning, nýja viðskiptavini eða breyttar áherslur í orkumálum.
Landsnet er framarlega í notkun stafrænna lausna í orkuflutningi. Í starfinu sameinast rafmagnsþekking og verkleg vinna við stillingar og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði í tengivirkjum. Þú tekur þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg samfélagsáhrif og styður við stafræna þróun flutningskerfisins.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.
Sótt er um starfið á landsnet.is. Nánari upplýsingar veitir Arna Kristín Sigurðardóttir, mannauðssérfræðingur, á mannaudur@landsnet.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Landsnet is a public company that owns and runs the electrical transmission system in Iceland, as well as handling its power system operation. All electrical lines and related constructions that transmit electrical energy with voltage of 66kV or higher are included in Landsnet‘s transmission system.