Hagvangur

Sérfræðingur í mannvirkjagerð - HMS

Hagvangur  •  Reykjavík, IS (Onsite)  •  5 months ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar. Áherslumál innan teymis eru m.a. endurskoðun byggingarreglugerðar og árangursrík innleiðing byggingarregluverks með því að veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Markvisst er stuðlað að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og virku samtali við hagaðila, m.a. í gegnum samstarfsvettvanginn Burð.

Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.

HMS óskar eftir að ráða sérfræðing mannvirkjagerð.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Umsjón og þátttaka í vinnu við gerð og miðlun fræðsluefnis um mannvirkjagerð
  • Útgáfustjóri leiðbeininga við byggingarreglugerð
  • Þátttaka í reglugerðarbreytingum á sviði mannvirkjagerðar
  • Byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við byggingarfulltrúa sveitarfélaga og fagaðila á sviði mannvirkjagerðar
  • Umsjón með móttöku, úrvinnslu og svörun fyrirspurna
  • Þátttaka í þróun mannvirkjaskrár

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun á byggingasviði s.s. arkitektúr, byggingafræði, tæknifræði eða verkfræði er skilyrði
  • Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Löggilding hönnuða er kostur
  • Góð greiningar- og skipulagshæfni og reynsla af umsjón verkefna
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Gott vald á íslensku og ensku

Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar

Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar - elin.thorolfsdottir@hms.is

Guðrún Alma Einarsdóttir, mannauðsstjóri HMS – gudrun.einarsdottir@hms.is

Inga Steinunn Arnardóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi – inga@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media