Landsnet

Sérfræðingur í kerfisgreiningum

Landsnet  •  Onsite  •  16 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Viltu hafa áhrif á framtíð raforkukerfis Íslands?

Landsnet leitar að öflugum einstaklingi til að taka þátt í þróun og mótun framtíðar flutningskerfis raforku á Íslandi.

Þú verður hluti af teymi sérfræðinga í Kerfisþróun sem vinnur að kerfisgreiningum og undirbúningi framtíðartenginga nýrra virkjana og notenda við flutningskerfið. Teymið starfar þvert á fyrirtækið í nánu samstarfi við önnur svið Landsnets og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu innviða fyrir aukna raforkunotkun samfélagsins.

Framundan eru spennandi áskoranir tengdar tækninýjungum, nýjum orkugjöfum og breyttum kröfum til raforkukerfisins. Við leggjum áherslu á framsækna uppbyggingu flutningskerfisins með það að markmiði að tengja betur saman nýja vinnslu og notkun, hámarka nýtingu kerfisins og stuðla að hagkvæmri þróun til framtíðar.

Helstu verkefni

  • Kerfisgreiningar og hermun á raforkukerfinu.
  • Greiningar tengdar nýjum orkugjöfum, tækninýjungum og framtíðarþróun kerfisins.
  • Þátttaka í vinnslu kerfisáætlunar og öðrum útgáfum deildarinnar.
  • Valkostagreiningar fyrir uppbyggingu flutningskerfisins.
  • Þróun kerfislíkana og annarra greiningarverkfæra.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur menntun í raforkuverkfræði eða aðra menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
  • Hefur áhuga á raforkukerfum og tæknilegri þróun þeirra.
  • Býr yfir greiningarhæfni og lausnamiðaðri hugsun.
  • Hefur góða samskiptahæfni og kann vel við sig í þverfaglegu samstarfi.
  • Þekking á kerfisgreiningum og hugbúnaði á borð við PowerFactory er kostur.

Við bjóðum þér

  • Samstarf við fjölbreyttan hóp sérfræðinga sem vinna að framtíð raforkukerfisins.
  • Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi sem styður við þróun og nýsköpun.
  • Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.

Nánari upplýsingar veitir Gnýr Guðmundsson, á gnyr@landsnet.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.

Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við erum líka framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.

Landsnet

About Landsnet

Landsnet is a public company that owns and runs the electrical transmission system in Iceland, as well as handling its power system operation. All electrical lines and related constructions that transmit electrical energy with voltage of 66kV or higher are included in Landsnet‘s transmission system.

Industry
Manufacturing & Production
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
Unknown
Social Media