Isavia

Sérfræðingur Þjónustumiðju

Isavia  •  Onsite  •  1 hour ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Langar þig að taka þátt í uppbyggingu nýrrar þjónustueiningar á Keflavíkurflugvelli og gegna lykilhlutverki í aðgangsmálum? Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum sérfræðingi til starfa í Þjónustumiðju, nýrri miðlægri þjónustueiningu Isavia á Keflavíkurflugvelli.

Þjónustumiðja sinnir miðlægri þjónustu við starfsfólk, verktaka og samstarfsaðila á Keflavíkurflugvelli og ber meðal annars ábyrgð á útgáfu og umsýslu aðgangspassa ásamt rekstri þjónustuvers. Áhersla er lögð á skjóta, faglega og lausnamiðaða þjónustu, skýra upplýsingagjöf og skilvirka afgreiðslu erinda.

Sem sérfræðingur Þjónustumiðju verður þú lykilaðili í umsýslu aðgangsheimilda og sinnir meðal annars útgáfu, umsýslu og eftirliti með aðgangsheimildum í samræmi við gildandi reglur og verklag. Starfið felur einnig í sér að greina tækifæri til umbóta og taka virkan þátt í þróun ferla tengdum aðgangsmálum og þjónustu.

Þar sem Þjónustumiðja er ný eining gefst jafnframt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu og þróun hennar og hafa áhrif á hvernig þjónustan og verklagið mótast.

Helstu verkefni

  • Útgáfa, endurnýjun og umsýsla aðgangsheimilda
  • Móttaka og afgreiðsla umsókna vegna aðgangsheimilda
  • Eftirlit með skráningum, réttindum og gögnum tengdum aðgangsmálum
  • Aðstoð og þjónusta við starfsfólk, verktaka og samstarfsaðila
  • Þátttaka í þróun og umbótum á verkefnum Þjónustumiðju
  • Símsvörun og afgreiðsla erinda sem berast í gegnum Þjónustumiðju
  • Að stuðla að skilvirku flæði upplýsinga og erinda innan fyrirtækisins

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Góð tölvu- og tæknikunnátta
  • Góðir skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
  • Rík þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Umbóta- og lausnamiðuð hugsun
  • Hæfni til að koma upplýsingum skýrt á framfæri á íslensku og ensku, bæði munnlega og skriflega
  • Jákvætt hugarfar

Starfsstöð: Keflavíkurflugvöllur

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 22. október 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga María Finnbjörnsdóttir, deildarstjóri Farþegaþjónustu, Helga.Finnbjornsdottir@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Isavia

About Isavia

We connect the world through Iceland ✈️

Isavia has the important role of handling the operation and development of infrastructure that lays the foundation for Iceland’s air transport, connections with the outside world and flights between continents.

Keflavik Airport is the largest gateway into Iceland. It is one of the most important single infrastructures of the tourism industry and plays an important role in creating a good quality of life and prosperity in Iceland.

To meet that responsibility, we have a united team and strong employees, who work together and with others in a constructive way.

Industry
Aviation & Aerospace
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Hafnarfjörður, IS
Year Founded
2010
Website
isavia.is
Social Media