EFLA Consulting Engineers

Sérfræðingur í iðnstýringum

EFLA Consulting Engineers  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

EFLA leitar að áhugasömum og metnaðarfullum sérfræðingi í hönnun iðnstýri- og hússtjórnarkerfa. Um er að ræða starf á iðnaðarsviði EFLU í fagteymi Stjórnkerfa. Í starfinu fengir þú tækifæri til að starfa í samhentu teymi reyndra sérfræðinga sem saman vinna að fjölbreyttum og spennandi verkefnum er tengjast hönnun stjórnkerfa í iðnaðarumhverfi og fyrir tæknikerfi bygginga.

Helstu verkefni

  • Forritun og prófanir á stjórnkerfum fyrir iðnað og byggingar.
  • Hönnun og forritun ljósastýringa
  • Forritun og prófanir hússtjórnarkerfa svo sem Siemens, Honeywell ofl.
  • Forritun og prófanir iðnstýrikerfa svo sem Rockwell Automation, Schneider og Siemens
  • Efnisval og samþykktir
  • Þjónusta við viðskiptavini
  • Verkefnastýring

Hæfnisviðmið

  • Menntun á sviði hátækni-, rafmagns-, eða heilbrigðis-, verk - eða tæknifræði.
  • Reynsla af rafmagni og iðnstýringum er kostur
  • Áhugi á tækninýjungum er nauðsynleg
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þjónustulipurð og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari upplýsingar

Yrsa G Þorvaldsdóttir - yrsa.gudrun.thorvaldsdottir@efla.is

Vinnustaðurinn EFLA

EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni.

Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn

Nánari upplýsingar um stefnur EFLU og persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á efla.is

EFLA Consulting Engineers

About EFLA Consulting Engineers

EFLA Consulting Engineers is a general engineering and consulting company based in Iceland with international activities and consultancy around the globe.

EFLA's strength is based on highly qualified and experienced professionals with expertise in a wide variety of fields. The company mission is to enable and support the success of its customers and society as a whole, through progressive and value-driven solutions.

As an acknowledged leader in its field, EFLA places a strong emphasis on innovation, cooperation, and courage, and regards its employees as its most valuable resource.

EFLA has affiliated companies based in Norway, Sweden, France, Poland, Scotland, Turkey and Germany.

Industry
Construction & Skilled Trades
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1973
Website
efla.is
Social Media