Isavia

Sérfræðingur í innkaupum

Isavia  •  Onsite  •  2 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að öflugum innkaupasérfræðingi til að bætast í hópinn okkar hjá Isavia.

Starfið fellur undir innkaupadeild á fjármálasviði Isavia og felur í sér fjölbreytta ráðgjöf og stuðning við svið og félög innan Isavia samstæðunnar á sviði innkaupa, útboða og samningagerðar. Innkaupasérfræðingur hefur umsjón með undirbúningi og framkvæmd innkaupaferla, vinnur náið með ólíkum einingum samstæðunnar og tekur þátt í að þróa og bæta innkaupastarfsemi félagsins.

Við leitum að einstaklingi sem hefur frumkvæði, vinnur sjálfstætt og skipulega og hefur ánægju af því að leysa fjölbreytt verkefni í lifandi starfsumhverfi

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf og stuðningur vegna innkaupa og samningagerðar
  • Skipulagning og undirbúningur innkaupa
  • Gerð útboðsgagna, verðfyrirspurna og samninga
  • Umsjón með framkvæmd útboða, verðfyrirspurna og sérleyfisútboða
  • Samskipti við birgja, bjóðendur og aðra hagsmunaaðila
  • Greining innkaupagagna, miðlun upplýsinga og þátttaka í umbótum á innkaupaferlum og vinnubrögðum

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkfræði, lögfræði eða viðskiptafræði
  • Framúrskarandi færni í skjalagerð, greiningu og úrvinnslu upplýsinga
  • Framúrskarandi samskipta- og samvinnuhæfni
  • Góð hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og sannfærandi hátt, bæði skriflega og munnlega
  • Góð stafræn færni og hæfni til að nýta nútímatækni, þ.m.t. gervigreind, til að auka gæði og skilvirkni í vinnu
  • Þekking og reynsla af undirbúningi og framkvæmd útboða er kostur
  • Þekking og reynsla af samningagerð og samningarekstri er kostur
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur

Starfsstöð: Hafnarfjörður og Keflavík

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Birkir Guðmundsson, deildastjóri á netfangið gudmundur.gudmundsson@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Isavia

About Isavia

We connect the world through Iceland ✈️

Isavia has the important role of handling the operation and development of infrastructure that lays the foundation for Iceland’s air transport, connections with the outside world and flights between continents.

Keflavik Airport is the largest gateway into Iceland. It is one of the most important single infrastructures of the tourism industry and plays an important role in creating a good quality of life and prosperity in Iceland.

To meet that responsibility, we have a united team and strong employees, who work together and with others in a constructive way.

Industry
Aviation & Aerospace
Company Size
201-500 employees
Headquarters
Hafnarfjörður, IS
Year Founded
2010
Website
isavia.is
Social Media