Samkaup leitar að metnaðarfullum og kraftmiklum einstaklingi til starfa á innkaupa- og vöruhúsasviði félagsins. Starfið er staðsett á aðalskrifstofu Samkaupa að Hagasmára 1 í Kópavogi.
Um er að ræða spennandi og ábyrgðarmikið starf í öflugu teymi þar sem reynir á skipulag, nákvæmni og góða yfirsýn, auk þess sem starfið býður upp á möguleika til starfsþróunar.
Starfssvið:
Hæfniskröfur:
Annað:
- Afsláttarkjör í verslunum Samkaupa
- Velferðarþjónusta Samkaupa
- Heilsustyrkur
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Gröndal, framkvæmdastjóri innkaupa- og vöruhúsasviðs, sigga@samkaup.is
Samkaup hefur hlotið titilinn Menntafyrirtæki atvinnulífsins 2022 og einnig jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.
Samkaup rekur um 70 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, 10-11, Extra og Prís. Hjá félaginu starfa um 1500 starfsmenn í rúmlega 700 stöðugildum.
Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.

Samkaup hf reka 64 verslanir víðsvegar um landið og er eitt af stærstu verslunarfyrirtækjum á Íslandi. Verslanir Samkaupa spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til hverfisverslana í íbúðahverfum. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin og Iceland. Staða Samkaupa er sterk utan höfuðborgarsvæðisins en félagið rekur einnig verslanir í Reykjavík og nágrenni.