Sérkennari óskast í leikskólann Reynisholt. Starfið felur í sér að sinna málörvun og atferlismótun fyrir þau börn í leikskólanum sem þess þurfa. Um er að ræða spennandi starf fyrir áhugasaman einstakling um sérþarfir ungra barna.
Viðkomandi myndi fá leiðbeiningar og stuðning frá sérkennslustjóra leikskólans. Starf viðkomandi heyrir undir sérkennsludeild leikskólans.
Um er að ræða hlutastarf eða fullt starf í skemmtilegum starfsmannahópi. Viðkomandi getur byrjað strax eða eftir samkomulagi.
Í leikskólanum er lögð áhersla á lífsleikninám í gegnum snertingu, jóga, umhverfismennt og bernskulæsi.
Í Reynisholti dvelja samtímis 80 börn á fjórum deildum.
Kjörorð leikskólans eru fagmennska, virðing og vellíðan.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Júlíana Sveinsdóttir leikskólastjóri (elin.juliana.sveinsdottir@reykjavik.is) eða Linda Rós Jóhannsdóttir, sérkennslustjóri (linda.ros.johannsdottir@reykjavik.is).
Nánari upplýsingar um leikskólann eru á heimasíðu leikskólans Reynisholts
Reynisholt er leikskóli staðsettur í Grafarholti, Gvendargeisla 13, 113 Reykjavik.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.