Hagvangur

Sölustjóri stáls - Ferro Zink

Hagvangur  •  Onsite  •  10 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Ferro Zink leitar að viðskiptadrifnum og metnaðarfullum sölustjóra stáls til starfa á starfsstöð félagsins í Hafnarfirði. Um er að ræða lykilhlutverk innan félagsins þar sem viðkomandi ber heildarábyrgð á rekstri, sölu og arðsemi stálsviðs Ferro Zink. Sölustjóri mótar verðstefnu sviðsins, stýrir framlegð og gegnir lykilhlutverki í áframhaldandi þróun viðskipta félagsins. Við leitum að einstaklingi með sterka viðskiptavitund, ríka þjónustulund og góðan skilning á verðmyndun, greiningum og kostnaði sem hefur metnað til að byggja upp arðbær og langvarandi viðskiptasambönd.

Helstu verkefni

  • Móta og stýra verðlagningu með hliðsjón af markaðsaðstæðum, kostnaði og framlegðarmarkmiðum
  • Gerð og eftirfylgni sölu- og rekstraráætlana
  • Annast tilboðsgerð og samningaviðræður
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini
  • Greina markaðsþróun, samkeppnisumhverfi og ný tækifæri til vaxtar
  • Fylgjast með þróun hrávöruverðs og áhrifum þess á rekstur sviðsins
  • Virkt samstarf við innkaup, lager, framleiðslu, fjármál og stjórnendur félagsins
  • Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun Ferro Zink

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sölu, viðskiptaþróun eða rekstrarstýringu
  • Sterk viðskiptavitund og góður skilningur á framlegð, kostnaði og verðlagningu
  • Reynsla af samningaviðræðum og tilboðsgerð
  • Góð greiningarhæfni og færni til að nýta gögn við ákvarðanatöku
  • Þekking eða mreynsla af stáliðnaði, byggingariðnaði eða sambærilegum greinum er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og árangursdrifin hugsun
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Viðeigandi menntun er kostur, en reynsla og þekking geta vegið þar upp á móti

Ferro Zink ehf. er markaðsdrifið þjónustufyritæki með yfirgripsmikla þjónustu og vörur. Sandblástur og Málmhúðun sf. var stofnað á Akureyri í febrúar árið 1960. Árið 1991 stofnuðu eigendurnir í samvinnu við aðra aðila, Ferro Zink hf. í Hafnarfirði. Voru fyrirtækin sameinuð í ársbyrjun 2008 undir nafninu Ferro Zink hf. Í dag fer starfsemin fram í 3.500 fermetra húsnæði á 20.000 fermetra lóð að Árstíg 6, Akureyri og í 2.500 fermetra húsnæði á 10.000 fermetra lóð að Álfhellu 12-14, Hafnarfirði.

Nánari upplýsingar

Hlynur Atli Magnússon – hlynur@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media