Advania Ísland

Söluráðgjafi í viðskiptalausnum

Advania Ísland  •  Iceland (Onsite)  •  1 day ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi söluráðgjafa sem vill vinna á krossgötum viðskipta, tækni og nýsköpunar.

Tækniþróun undanfarinna ára hefur breytt því hvernig fyrirtæki starfa, taka ákvarðanir og skapa sér samkeppnisforskot. Fyrirtæki leita í auknum mæli leiða til að einfalda ferla og nýta tæknina betur til að búa til raunverulegan rekstrarávinning. Þar gegna gervigreind, sjálfvirknivæðing og gagnadrifin ákvarðanataka sífellt veigameira hlutverki.

Hlutverk söluráðgjafa verður að hjálpa fyrirtækjum að hagnýta snjallar tæknilausnir, þar á meðal:

  • Dynamics 365 Business Central
  • Power Platform (Power Apps, Power Pages, Power Automate, Power BI og Copilot Studio)
  • Gagnagreindarlausnir (vöruhús gagna, áætlanakerfi o.fl.)
  • SharePoint
  • Mannauðslausnir Advania (H3, Samtal, Vinnustund o.fl.)

Starfið felst í söluráðgjöf, kynningum, gerð tilboða og samninga, auk virkra og markvissra samskipta við nýja og núverandi viðskiptavini. Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á upplýsingatækni og mannlegum samskiptum.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Þekking og reynsla af sölu og/eða þjónustu á hugbúnaðarlausnum og viðskiptakerfum er kostur
  • Hæfni í framkomu og kynningum
  • Gott vald á töluðu og rituðu máli
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og áhugi á að þróa og rækta ný viðskiptasambönd

Vinnustaðurinn Advania

Vinnustaðurinn er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur. Áherslan á að vera einn besti vinnustaður landsins kemur best fram í vinnustaðagreiningum sem hafa sýnt mikla ánægju starfsfólks um árabil. Advania hefur markað sér fjarvinnustefnu og stendur starfsfólki til boða að vinna að hluta til í fjarvinnu. Í höfuðstöðvum okkar í Guðrúnartúni er svo boðið upp á mat í glæsilegu mötuneyti, góða líkamsræktaraðstöðu og leikherbergi - bæði fyrir starfsfólk og stuttfætta gesti.

Advania hefur markað sér bæði jafnréttisstefnu og sjálfbærnistefnu. Við leggjum mikla áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti og hlaut Advania jafnlaunavottun árið 2018 fyrst íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja. Einnig fylgjumst við grannt með okkar kolefnisspori, aðfangakeðju og áhrifum okkar á samfélagið og setjum okkur háleit markmið um úrbætur.

Ef þú leitar að spennandi verkefnum, góðu vinnuumhverfi og hressu samstarfsfólki, þá finnurðu það hjá okkur. Gildi Advania eru snerpa, ástríða og hæfni

Ferli ráðninga

  1. Tekið á móti umsóknum til 24. ágúst 2026
  2. Yfirferð umsókna
  3. Boðað í fyrstu viðtöl
  4. Boðað í seinni viðtöl
  5. Verkefni eða próf lögð fyrir ef við á
  6. Öflun umsagna / meðmæla
  7. Ákvörðun um ráðningu
  8. Öllum umsóknum svarað

Starfsfólk mannauðssviðs ásamt deildarstjóra, forstöðumanni og framkvæmdastjóra þess sviðs sem starfið tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Sigfús Jónasson, deildarstjóri VL sala, sigfus.jonasson@advania.is / 4409000.

Advania Ísland

About Advania Ísland

Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum áhrifum á samfélagið með snjallri notkun upplýsingartækninnar.

Industry
IT & Software
Company Size
501-1,000 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1939
Social Media