Fagkaup

Söluráðgjafi óskast til Johan Rönning, Akureyri

Fagkaup  •  Akureyri, IS (Onsite)  •  2 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Johan Rönning óskar eftir að ráða söluráðgjafa í útibú fyrirtækisins á Akureyri.

Söluráðgjafi veitir ráðgjöf til fagfólks og viðskiptavina.

Reynsla af rafvirkjastörfum er kostur og að viðkomandi hafi áhuga á að starfa í fjölbreyttu umhverfi þar sem fagþekking, þjónustulund og góð samskipti skipta máli.

Ef þú hefur reynslu úr faginu, hefur gaman af samskiptum við fólk og vilt vera hluti af sterkum hópi samstarfsfólks, þá viljum við gjarnan heyra frá þér!

Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf sem býður upp á möguleika til starfsþróunnar og vaxtar í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sala, ráðgjöf og þjónusta til fagfólks og viðskiptavina
  • Tilboðsgerð og eftirfylgni með sölu og tilboðum
  • Eftirfylgni sértækra pantana
  • Samskipti við aðrar deildir Fagkaupa
  • Önnur tilfallandi verkefni útibús

Menntunar og hæfniskröfur

  • Reynsla af sölu og verslunarstörfum er kostur
  • Reynsla í rafiðngreinum er kostur
  • Menntun á sviði rafbúnaðar er kostur
  • Þjónustulund og samskiptahæfni
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Stundvísi, frumkvæði og áreiðanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta
Fagkaup

About Fagkaup

Fagkaup er leiðandi fyrirtæki í sölu, þjónustu og viðskiptaþróun á iðnaðar-, veitu- og byggingarvörumarkaðnum á Íslandi.

Fagkaup styður við uppbyggingu innviða í íslensku atvinnu- og efnahagslífi með virðisaukandi vörum og framúrskarandi þjónustu.

Fagkaup samanstendur af nokkrum mismunandi rekstareiningum, hvert með sína eigin sögu en byggir á sterkum grunni Johan Rönning, sem auk þess að vera leiðandi í sölu og þjónustu á raflaganaefni og rafbúnaði til fagmanna, hefur allt frá árinu 2007 við sameiningu systurfélaga sinna rekið öfluga stoðþjónustu við þær einingar ásamt öðrum rekstrareiningum sem bæst hafa við eftir því sem árin liðu. Rekstrareiningarnar eru 11 talsins; Johan Rönning, Sindri, Vatn og veitur, Áltak, S. Guðjónsson, Ísleifur, Varma og vélaverk, KH Vinnuföt, Fossberg, Hagblikk og Þétt.

Industry
Wholesale & Distribution
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1933
Social Media