Hagvangur

Sölumaður varahluta

Hagvangur  •  Onsite  •  2 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Viltu starfa hjá öflugu fyrirtæki sem flytur inn og þjónustar vinnuvélar og tæki fyrir íslenskan markað? Við leitum að þjónustulunduðum og lausnamiðuðum einstaklingi til að sinna fjölbreyttu og ábyrgðarmiklu starfi á sviði varahluta og þjónustu.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf, tilboðsgerð og sala á varahlutum og tengdum vörum
  • Samskipti við viðskiptavini og afhending á vörum
  • Umsjón með pöntunum og innkaupum
  • Móttaka, skráning og frágangur vörusendinga
  • Tiltekt pantana og eftirfylgni með afhendingum
  • Samskipti við erlenda framleiðendur og birgja
  • Þátttaka í að tryggja framúrskarandi þjónustu og ánægju viðskiptavina

Hæfniskröfur

  • Reynsla af störfum tengdum bifreiðum, vinnuvélum, varahlutum eða tæknibúnaði
  • Góð þjónustulund og rík samskiptahæfni
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Lausnamiðað hugarfar og jákvætt viðmót
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Við bjóðum

  • Fjölbreytt starf hjá traustu fyrirtæki
  • Tækifæri til að vinna með þekkt vörumerki og tæknilegar lausnir
  • Öflugt starfsumhverfi og góðan starfsanda

Nánari upplýsingar

Inga S. Arnardóttir – inga@hagvangur.is

Hagvangur

About Hagvangur

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.

Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.

Industry
Consulting & Advisory
Company Size
11-50 employees
Headquarters
Reykjavík, IS
Year Founded
1971
Social Media