Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun Akureyri
Ertu snöll sölumanneskja með framúrskarandi þjónustulund? Þá gæti starf sölu- og þjónusturáðgjafa í verslunum Sýnar á Akureyri verið rétta starfið fyrir þig. Í verslunum Sýnar kynnum við glæsilegt vöruúrval okkar fyrir viðskiptavinum, hjálpum þeim að velja vörur sem henta og aðstoðum við notkun. Sölu- og þjónusturáðgjafar eru með mikið keppnisskap, hafa brennandi áhuga á tækni og nýjungum og eru ávallt viðbúnir að leita að bestu lausnunum fyrir hvern viðskiptavin. Við leitum að starfsmanni í fullt starf og er vinnutími frá kl 10-18 alla virka daga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Hvað höfum við að bjóða þér?
Hver erum við?
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.
Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 18.ágúst 2026. Umsóknir verða rýndar um leið og þær berast.
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á mannaudur@syn.is. Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum ráðningavefinn okkar.

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.