Við leitum að hressum og söludrifnum liðsfélögum í verslanir og þjónustuver Nova.
Sölu- og þjónusturáðgjafar eru andlit Nova – hvort sem viðskiptavinir kíkja í verslun, hringja eða senda línu á netspjallinu taka þeir á móti þeim með bros á vör, veita framúrskarandi ráðgjöf um síma, tæki og þjónustuleiðir og sjá til þess að öll samskipti séu skemmtileg upplifun í anda Nova.
Lífsgleði, metnaður og keppnisskap eru eiginleikar sem skipta höfuðmáli – og auðvitað brennandi áhugi á tækni og fjarskiptum.
Engin sérstök reynsla nauðsynleg ef viðhorfið er rétt: við þjálfum þig í öllu hinu!
Helstu verkefni
Hæfniskröfur
Af hverju Nova?
Hjá Nova starfa um 160 dansarar sem kappkosta alla daga við að veita framúrskarandi þjónustu.
Við státum ekki einungis af ánægðustu viðskiptavinunum á farsímamarkaði sautján ár í röð heldur einnig ánægðustu dönsurunum – Nova hefur hlotið nafnbótina Fyrirtæki ársins fjórum sinnum og verið fyrirmyndarfyrirtæki VR í 18 ár.
Svo elskum við að skora á okkur sjálf og hvert á annað!
Um starfið
Viltu dansa með okkur?

Nova var stofnað í maí 2006 og í lok mars 2007 fékk Nova úthlutað 3G rekstrarleyfi. Þann 1. desember 2007 opnuðum við svo dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi. Nova á og rekur eigið 4G/4.5G farsíma- og netkerfi á landsvísu. Í febrúar 2019 hóf Nova prófanir á fyrsta 5G sendinum á Íslandi og 5.5.2020 fór Nova í loftið með 5G farsíma- og netþjónustu, fyrst allra farsímafyrirtækja á Íslandi. Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi.
Við erum sérstaklega stolt og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins 2023, hlotið Jafnlaunavottun 2020-2023, fyrir að vera Markaðsfyrirtæki ársins 2020 hjá ÍMARK og eiga ánægðustu viðskiptavinina á farsímamarkaði 17. árið í röð! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustað í heimi!
Nova is a life-style oriented brand built around the first independent 3G mobile operator in Iceland. Nova has enjoyed an unparalleled success in the Icelandic telco market by capturing 34,5% of the mobile market share and in doing so established itself as a leading brand and the market challenger. The key to this success is the quality of the customer service Nova offers. Nova has been awarded the highest customers satisfaction score sixteen years in a row. Nova was the first telecommunication company to test the first 5G transmitter in Iceland and on 5 May 2020, Nova went live with 5G mobile phone and internet services, the first of all mobile phone companies in Iceland. Nova has 150 talented employees with various backgrounds and experiences. In 2016 Nova added fiber service to its selection of products, using a fiber system provided by Ljósleiðarinn ehf. We are especially proud, humble and grateful to have the opportunity to service you as a customer and our opportunities to grow and learn every day.