Orka náttúrunnar / ON Power

Sölu- og þjónustufulltrúi

Orka náttúrunnar / ON Power  •  Onsite  •  4 hours ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Viltu þjónusta ánægðustu viðskiptavini á raforkumarkaði?

Við leitum að jákvæðum, metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstakling í hlutverk sölu- og þjónustufulltrúa.

Um er að ræða tímabundið starf til eins árs og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf þann 4. ágúst nk.

Ef þú hefur áhuga á að vinna í spennandi og tæknilegu starfsumhverfi þá hvetjum við þig til að skoða þetta tækifæri.

Helstu verkefni:

Mikilvægustu verkefni sölu- og þjónustufulltrúa felast í að veita viðskiptavinum ON framúrskarandi þjónustu, jafnt í síma og í gegnum rafræna miðla.

Markmið okkar er að tryggja faglega og skilvirka þjónustu í hverju erindi, fylgja þeim eftir frá upphafi til enda og greina tækifæri til umbóta.

Sölu- og þjónustufulltrúar vinna á vöktum, ýmist frá 8:00 - 16:00 eða frá 9:00 - 17:00.

Hæfniskröfur:

  • Við leitum að tæknilega sinnuðum einstaklingum með góða tölvufærni
  • Framúrskarandi þjónustulyndi og færni í mannlegum samskiptum
  • Starfið gerir kröfu um nákvæmni og vandvirkni
  • Við fögnum umsækjendum sem hafa færni í þriðja tungumáli en gerum sérstaka kröfu um íslensku- og enskukunnáttu

Stefna ON er að auka lífsgæði viðskiptavina okkar með sjálfbærri verðmætasköpun.

Við erum á réttri leið og því til staðfestingar höfum við veitt Ánægjuvoginni viðtöku undanfarin 7 ár.

Við tökum jafnréttið alvarlega

Við viljum hafa sem fjölbreyttastan hóp starfsfólks og hvetjum því öll kyn til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2026.

Eingöngu er tekið á móti umsóknum á ráðningarvef ON, www.on.is/storf

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sara Sigurjónsdóttir í netfanginu sara.sigurjonsdottir@on.is

Um Orku náttúrunnar

Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn í jarðhitavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt framleiðslu rafmagns með vatnsafli í Andakílsárvirkjun.

ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og selur rafmagn til fyrirtækja og heimila um allt land en framleiðir heitt vatn til sölu og dreifingar hjá systurfélagi þess, Veitum.

ON er dótturfélag Orkuveitunnar sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.

ON framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.

Hvernig vinnustaður er Orkuveitan?

Orka náttúrunnar / ON Power

About Orka náttúrunnar / ON Power

ON Power produces and sells geothermally generated electricity for the Icelandic market. As well as providing the capital area of Reykjavík with hot water.

The objective is to protect the interests of the country’s natural resources and the company’s customers, guided by the principle of sustainability. In so doing, the company supports innovation and the responsible utilisation of natural resources and promotes energy switching to a lower ecological footprint for the benefit of society as a whole.

//

Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt til allra landsmanna á Íslandi.

Markmiðið er að gæta hagsmuna auðlinda landsins og viðskiptavina fyrirtækisins með sjálfbærni að leiðarljósi. Þar með styður fyrirtækið við nýsköpun, ábyrga nýtingu auðlindarinnar og flýtir fyrir orkuskiptum með minna vistspori, samfélaginu öllu til heilla.

Industry
Energy & Utilities
Company Size
51-200 employees
Headquarters
Reykjavik, IS
Year Founded
2014
Website
on.is
Social Media