Árskóli á Sauðárkróki auglýsir laust til umsóknar nýtt starf skrifstofustjóra. Um 60% starf er að ræða frá 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi. Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi.
Árskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur sem búa á Sauðárkróki, í Hegranesi, á Reykjaströnd og á Skaga. Í Árskóla vinnur sérmenntað starfsfólk saman að því að mæta ólíkum einstaklingum með krefjandi verkefnum við hæfi hvers og eins. Starfsemi Árskóla fer fram í húsnæði skólans við Skagfirðingabraut. Í Árskóla eru um 390 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er deildaskiptur í yngsta stig, miðstig og unglingastig.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum og ábyrgðarmiklum verkefnum á skrifstofu skólans. Skrifstofustjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri skólans og starfar í nánu samstarfi við skólastjórnendur, starfsfólk, nemendur og foreldra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Vinnutími er frá kl. 07:40 alla virka daga skv. nánara samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Bjarni Halldórsson, skólastjóri, kristjan@arskoli.is, 4551101 / 6914999.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Prófskírteini, leyfisbréf og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að lokinni ráðningu.

In Skagafjörður it is possible to enjoy both the rich cultural life and lifestyle. The district is an ideal place to enjoy Icelandic nature, horsemanship as well as activities and events for the whole family. Historical sites are many, including museums and exhibits. On this website you can find what Skagafjörður has to offer and you are welcome to contact or visit the Information centre in Varmahlíð or Sauðárkrókur that will assist you to plan a great holiday in Skagafjörður.