Akureyrarbær

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs: Verkefnastjóri fjármála og rekstrar

Akureyrarbær  •  Onsite  •  12 days ago
Apply
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs óskar eftir verkefnastjóra fjármála og rekstrar. Um er að ræða ótímabundið starf. Starfshlutfall 100% og unnið er í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Skrifstofa er stoðdeild á fræðslu- og lýðheilsusviði. Þar er yfirumsjón og eftirlit með rekstrareiningum sviðsins á sviði skólamála, skólaþjónustu, tómstunda-, forvarna- og íþróttastarfs, auk þess sem veitt er ráðgjöf á þeim sviðum.

Markmið starfs verkefnastjóra fjármála og rekstrar er að styðja stjórnendur sviðsins í rekstri, einkum á sviði fjármála, með greiningu, eftirfylgni og gerð fjárhagsáætlana. Verkefnastjóri rekstrarmála ber ábyrgð á yfirumsjón með rekstri og áætlanagerð fyrir stofnanir sviðsins.

Helstu verkefni eru:

  • Umsjón með fjárhagsáætlun og rekstri allra eininga sviðsins í samvinnu við stjórnendur, þar á meðal gerð greinargerðar með fjárhagsáætlun.
  • Umsjón með gerð launaáætlunar í samstarfi við stjórnendur og stofnanir sviðsins, ásamt millifærslum vegna samstarfsverkefna.
  • Samþykkt reikninga sem ekki falla beint undir einstaka stjórnendur, svo sem vegna sameiginlegs kostnaðar (t.d. skólaaksturs, mötuneyta og annarra sameiginlegra verkefna), og reikninga sem skiptast milli aðila.
  • Ráðgjöf og eftirlit með rekstri skólamötuneyta.
  • Gerð rekstrargreininga og skýrslna fyrir stofnanir og einstök verkefni.
  • Þátttaka í innleiðingu og þróun verkferla, verklags og kerfa.
  • Umsjón með innheimtu vegna seldrar þjónustu, svo sem námskeiða, kennslu, samninga og þjónustu við önnur sveitarfélög.
  • Samantekt tölulegra upplýsinga um rekstur og áætlanir, m.a. rekstraryfirlit fjárhags- og starfsáætlana.
  • Umsjón með úthlutun stoðþjónustu í leik- og grunnskólum í samráði við forstöðumann skólaþjónustu.
  • Er tengiliður við fjársýslusvið sveitarfélagsins vegna heildarreksturs eininga innan sviðsins, í samstarfi við forstöðumann skrifstofu.
  • Hefur umsjón með útboðum á sviði fræðslumála (t.d. ræstingar, skólaakstur, mötuneyti og námsgögn), kemur til framkvæmdar og veitir eftirfylgni.
  • Yfirferð vinnuskýrslna grunnskólakennara í upphafi skólaárs í samráði við skólastjórnendur.
  • Umsjón með samningum við verktaka og uppgjöri vegna utanskólavalgreina.
  • Umsjón með samstarfi grunnskóla og íþróttafélaga vegna útleigu húsnæðis.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (BSc/BA eða sambærilegt) sem nýtist í starfi s.s. á sviði fjármála, viðskipta, hagfræði eða verkfræði.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
  • Reynsla af rekstrartengdum verkefnum.
  • Þekking á málaflokkum sviðsins er æskileg.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu kostur.
  • Krafist er góðrar tölvufærni, mikillar hæfni í notkun Excel og bókhalds- og skjalakerfum.
  • Færni í framsetningu gagna og annara upplýsinga í skýrsluformi.
  • Reynsla og þekking á hreinsun og úrvinnslu gagna og tengingu gagnasetta er kostur.
  • Þekking á gagnagreiningatólum, t.d. PowerBI, er kostur.
  • Geta og færni til að öðlast nýja þekkingu og tileinka sér notkun nýrra forrita og vinnubragða.
  • Góð greiningarhæfni og talnalæsi.
  • Geta til að vinna sjálfstætt og markvist að eigin verkefnum.
  • Samskiptafærni, sveigjanleiki og víðsýni.
  • Metnaður til að ná árangri í starfi og innleiða nýjungar.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ida E. Jensdóttir, forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs í 460-1454 og á netfangið ida@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026.

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown