Dalabyggð leitar að skólastjóra Auðarskóla, samrekinn leik-, tónlistar- og grunnskóla í Búðardal. Við leitum að leiðtoga með metnað, hlýju og áhuga á öflugu skólastarfi í samfélagi þar sem hægt er að hafa raunveruleg áhrif.
Skólastjóri ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í mótun skólastarfsins og í samstarfi skóla og samfélags.
Meginverkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1. ágúst 2026.
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfallið er 100%. Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið.
Í Dalabyggð sameinast kyrrð, hæglæti, gott samfélag og tækifæri í lífsgæðum. Í Búðardal er öflug íþróttaaðstaða, fjölbreytt félagslíf, helsta þjónusta og samfélag sem tekur vel á móti fólki. Hér hægja umferðateppur og rauð ljós ekki á þér — en gæti farið svo að þú hægir oftar á þér til að veifa brosandi andlitum.
Frekari upplýsingar
Þórdís Sif Arnarsdóttir – thordis@hagvangur.is
Geirlaug Jóhannsdóttir - geirlaug@hagvangur.is

Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem stofnað var árið 1971 og býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum.
Hagvangur þjónustar árlega hundruði viðskiptavina við allt sem snýr að ráðningum og mannauðsráðgjöf. Starfsfólk Hagvangs hefur unnið mikið brautryðjendastarf í ráðningum og ráðgjöf á Íslandi og höfum við áralanga þekkingu og reynslu af atvinnulífinu. Það ásamt breiðu tengslaneti og góðu orðspori eru meðal þeirra þátta sem við erum gríðarlega stolt af.