Akureyrarbær

Skólaþjónusta: Sérfræðingur í farteymi

Akureyrarbær  •  Onsite  •  26 days ago
Expired
AI can make mistakes so check important info. Chat history is never stored.

Job Description

Fræðslu- og lýðheilsusvið óskar eftir að ráða til starfa sérfræðing í farteymi skólaþjónustu. Um tvær tímabundnar stöður er að ræða í 100% starfshlutfalli þar sem unnið er í dagvinnu. Ráðið er í störfin til tveggja ára frá 1. ágúst eða eftir samkomulagi.

Farteymi skólaþjónustu er nýtt tilraunverkefni til tveggja ára með það að markmiði að veita tímabundinn, markvissan og þverfaglegan stuðning inn í leik- og grunnskóla Akureyrarbæjar þegar önnur úrræði eru fullreynd. Sérfræðingar farteymis starfa að mestu inni í skólaumhverfinu, vinna með börnum, styðja við starfsfólk og innleiðingu inngripa sem bæta námsumhverfi, öryggi, líðan og virkni.

Helstu verkefni eru:

  • Greinir og metur stöðu og þarfir barna í skóla.
  • Vinnur tímabundið í nánu samstarfi við starfsfólk og börn í skólaaðstæðum.
  • Vinnur með og styður við starfsfólk skóla við aðlögun náms, kennsluhátta og skipulags.
  • Setur fram áætlanir og daglega ferla í samstarfi við starfsfólk skóla.
  • Samþætting verkefna og þróunarvinna á fræðslu- og lýðheilsusviði.
  • Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þvert á svið/stofnanir.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (BS/BA/B.Ed).
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Farsæl og nýleg reynsla af vinnu með börnum sem þurfa sérhæfðan stuðning.
  • Farsæl og nýleg reynsla við ráðgjöf á sviði málefna barna.
  • Haldbær þekking á hegðunarerfiðleikum, tilfinningavanda og þroskafrávikum.
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem varða þjónustu við börn.
  • Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
  • Áhugi og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Góð enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfinu. Mikilvægt er að einnig komi fram hugmyndir umsækjenda og sýn á starfið.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Vilhjálmsdóttir, forstöðumaður skólaþjónustu í síma 460-1455 og á netfangi helgav@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2026

Akureyrarbær

About Akureyrarbær

Industry
Unknown
Company Size
Unknown
Headquarters
Unknown
Year Founded
Unknown
Social Media
Unknown