
Frístundamiðstöðin Tjörnin leitar að áhugasömu og hæfu starfsfólki í hlutastörf á frístundaheimilum sínum næstkomandi skólaár (2026/2027). Áhugasömum er bent á að starfið hefst 24. ágúst og því er ráðið í hlutastörf við frístunaheimilin frá og með þeim tíma.
Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur um 13:30 og er starfið kjörið fyrir þau sem eru í skóla og leita að skemmtilegu hlutastarfi með námi eða þau sem vilja vinna í 50% starfi eftir hádegi.
Meginmarkmið starfsins er að efla félags- og samskiptafærni barna í gegnum leik og starf og að virkja þau til þátttöku. Hæft og áhugasamt starfsfólk er lykillinn að því að veita börnunum og foreldrum sem sækja þjónustu til frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar fyrsta flokks þjónustu og gegna hæfir og áhugasamir frístundaleiðbeinendur/frístundaráðgjafar þar veigamiklu hlutverki.
Frístundamiðstöðin Tjörnin starfrækir frístundaheimilin Draumaland við Austurbæjarskóla, Eldflaugina við Hlíðaskóla, Frostheima, safnfrístund fyrir 3. og 4. bekk í Vesturbæ, Halastjörnuna við Háteigsskóla, Selið við Melaskóla, Skýjaborgir við Vesturbæjarskóla og Undraland við Grandaskóla en leitað er eftir fólki á alla þessa staði. Umsækjendur geta tekið fram í umsókn hvort einn staður henti betur en annar.
Frístundamiðstöðin Tjörnin heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sem leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks og við störfum samkvæmt menntastefnu Reykjavíkurborgar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Í boði eru hlutastörf 20-50% eftir hádegi frá 24. ágúst.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Sé óskað nánari upplýsinga um starfið má senda tölvupóst á Steinunni Th. Gretarsdóttur, deildarstjóra barnasviðs á netfangið: steinunn.th.gretarsdottir@reykjavik.is
Ráðningarform - Timabundin ráðning til 10. júní 2027
Tjörnin - Barnastarf
Vesturmiðstöð.

Reykjavik is a young, vibrant city inhabited by an educated, highly skilled population. It is the capital of Iceland; a Nordic country with an excellent infrastructure and a high quality of life. The city is surrounded by nature, where within an hour’s drive you can experience glaciers, waterfalls, lava canyons and other geological wonders. Iceland is located half way between North-America and Europe and is renowned for its approach towards sustainability, where 99% of all electricity in Iceland is generated from green, renewable energy.